sunnudagur, 6. apríl 2008

Dýri laugardagurinn



Vá hvað allt er orðið miklu dýrara. Fór í Smáralindina í gær og var að hugsa um að versla mér föt. Fór í Levis búðina sem er venjulega kannski ekki ódýrasta búðin og ætlaði að líta á gallabuxur. Buxur sem voru á 12.900,- eða 13.900,- minnir mig eru komnir í 18.990,-. Þannig að í dag ef maður ætlar sér að versla sér gallabuxur þarf maður að vera tilbúinn að gefa annað nýrað. Þannig að ég endaði bara með einn skitinn peysugarm og ennþá með nýrað á sama stað.

Svo er náttúrulega bensínið alveg rokið upp úr öllu valdi. Var 147,- rúmar þegar ég keypti bensín síðast. Það kostar mig s.s 2.000,- meira að fylla bílinn minn af bensíni. Hugsa að ég fari einn niður á alþingi og hefji þar "fjölda" mótmæli gegn háu bensínverði og skelli mér þar í hóp atvinnubílstjóra.

Jæja... verð að fara að selja nýrað fyrir hádegismat


-Ísak-

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úff já þetta er slæmt, það verða engin líffæri eftir hjá manni ef manni langar í eitthvað ... en þá er kanski bara ágætt að vera hérna í dk og notað hjólið góða, það þarf allavega ekki bensín á það :) annars bestu kveðjur á þig héðan úr danaveldi :)

kv.Allý

Nafnlaus sagði...

Svakalega er erfitt að kommenta, held ég sé fatlaður