laugardagur, 29. mars 2008

Kominn í harkið

Þá er maður kominn aftur i blogg harkið og farinn að skrifa pistla á útblástur ventilinn blogspot eins og forðum daga sér og öðrum til gamans. Það sem hefur breyst frá því ég skrifaði síðast svona pistil er að ég er orðinn eins og megin þorri landsmanna búinn að fá mér myspace sem ég kann lítið á og svo facebook sem ég kann ekkert á. Engu að síður hef ég tekið þann pól í hæðina að fylgja tískustraumum netvafrarans. Maður er varla maður meðal manna nema að hafa eitt stk facebook síðu nú til dags og er maður litinn hornauga ef maður segist ekki þekkja facebook eða myspace.

Mikið vatn er runnið til sjávar síðan að ég lét sjá mig hérna á útblásturs ventli nútímamannsins. Í fyrsta lagi er ég alfarið kominn heim á Íslandið góða og er ekkert fararsnið á manni. Í öðru lagi þá er ég farinn að vinna í útivistarfatnaðarbransanum og er orðinn sölumaður hjá ZO-ON útivistarfatnaði, sem ábyggilega einn eða tveir íslendingar kannast við. Svo eins og venjulega er ég verulega danstengdur í hitt og þetta dansdót hér og þar.

Annars styttist ískyggilega í að maður verður 25 eða kvart hundrað. Þetta er búið að vera svona raunveruleika tjekk upp á síðkastið hjá manni, vinir manns farnir að trúlofa sig og eignast börn eins og þeim sé borgað fyrir það. Ég er með blendnar tilfinningar gagnvart þessum "áfanga" að verða kvart hundrað. Sjáum hvort að þetta hafi eitthvað breyst í Júlí þegar stóri dagurinn rennur upp.

En það sem hefur án staðið upp úr síðustu mánuðina er að ég eignaðist lítinn frænda. Rakel systir mín eignaðist myndarlegan strák sl. aðfangadag. Sem síðasta sunnudag fékk nafnið Gabríel Max og er vel við hæfi að enda þessa skrifræpu með mynd af peyjanum

-Ísak-

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er ánægð með að þú sért farinn að blogga aftur.. :) og hann er nú frekar sætur nýji frændinn þinn og fallegt nafnið hans. En ekki vera hræddur við kvart hundraðið, það verður bara gaman held ég ;)

bíð spennt eftir næstu færslu
kv. Allý