Iron Maiden er klárlega besta tónlistin til þess að hafa með sér í ræktinni. Síðasta vika í ræktinni var Iron Maiden vikan klárlega. Slagarar á borð við "run to the hills" " fear of the dark" "the number of the beast" og "wickerman" með sterka innkomu eins og ávallt. Nú á að fara að taka ræktina með ansi föstum tökum.. Byrja í einkaþjálfun á mánudaginn. Markmiðið er að geta hýjað á Van Damme í lok sumars.

Djamm... hreinlega búið að vera of mikið af því. Einn leigubílstjóri sem ég fékk far hjá heim um daginn sagði við mig að alvöru karlmenn drykkju í 3mánuði straight. Lúmskan grun um að leigubílstjórinn hafi átt við áfengisvandamál að stríða. Maður þarf klárlega að finna sér annað sér til gamans en að fara á djammið í bænum sem er klárlega orðið mjög leiðinlegt. (klárlega er klárlega orðið í þessum texta)
In case fyrir ykkur útlendingana sem eru að koma heim til Íslands á næstunni... undirbúið ykkur fyrir all verulegt sjokk.. það er allt orðið ógeðslega dýrt hérna á klakanum. Sbr. bensínið.. fyllti bílinn minn um daginn og líterinn var á 160kr í sjálfsafgreiðslu.
-Ísak-




